Hér kem ég

30.03.2007 14:39:13 / sigrun_28

BLABLABLA

Jæja ætli ég verði ekki að skrifa eitthvað hérna inn...... þar sem alltaf er verið að bögga mig á því að ég sé svo löt að blogga... ég verð alveg að viðurkenna, málið er bara að ég hef ekkert merkilegt að segja hehe..... ég lifi greinilega svo tilburðalitlu lífi að það er ekki þess vert að skrifa um það 8)

 

jæja ég er allavega núna komin með nýrri færslu en RÓSA..... na na na gú gú  :lol: 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 12:35:28 / sigrun_28

Jæja þá er kominn nýr fjölskyldumeðlimur í Bjarkarhraun :)



Sá hinn sami heitir Moli og er hundurinn okkar :) hann er blanda af border collie/collie og labrador.... þetta er besti hundur í HEIMI eða það finnst okkur allavega ;) þetta er algerlega nýtt fyrir mér þar sem ég hef aldrei átt hund áður, og má segja að mér þyki þetta alveg jafn skemmtilegt og syni mínum........... en það koma tímar sem ég er ekki alveg jafn ánægð og hann hehe það bitnar nefnilega á mér að hreinsa upp eftir hann þegar hann gerir þarfir sínar á gólfið mitt8) ég held ég hafi aldrei skúrað gólfið eins oft og núna eftir að þessi litli gutti flutti inn:lol: en hann má þó eiga eitt þessi elska hann er voðalega duglegur að gera þarfirnar á dagblöð og einnig úti  þó það koma annað slagið fyrir að það fari út fyrir ég set það ekki fyrir mig ;)



Sjáið hvað strákarnir mínir eru sætir þarna sofnuðu þeir á gólfinu saman :) það er ekki hægt að segja annað en ég á FALLEGUSTU stráka í heimi :D báðir með þessi líka fallegu brúnu augu...

Kveðja Sigrún hamingjusama

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 00:09:25 / sigrun_28

Ársspá fyrir árið 2007

 

 



Nautið
Nautið (20.apríl - 20.maí) - Ársspá 2007


Humm þetta verður gaman að sjá............................

 

 



 

 



 

 



 

 



* Þú ert eins og viðkvæmt blóm á tilfinningasviðinu
* Leggur hart að þér að afla vina og vandamanna
* Þú eflir gjafmildi þína
* Léttlyndi einkennir þig því þú finnur himnaríki sem er líf þitt
Þú ryður brautina árið framundan á því leikur enginn vafi ef þú ert fædd/ur að vori. Þú lýkur því sem þú byrjar á. Að sama skapi leggur þú hart að þér við að afla vina, vinna tengdafólkið á þitt band og koma á góðum samskiptum við vinnufélaga þína. En allt er breytingum undiropið, líka vinátta, og ekki er allt þess virði að halda því við. Þú munt átta þig á þeirri staðreynd áður en vorar. En þegar þú verður fær um að sjá hlutina eins og þeir eru en ekki eins og þú vilt að þeir séu þá lærir þú að sleppa takinu og líf þitt breytist til hins betra.


Ok ég lýk við eitthvað sem ég byrja á svona til tilbreytingar, ég er í kapphlaupi við að eignast nýja vini, ég smjaðra utaní tengdafólki, sem ég by the way á ekki því ég á EKKI kærasta/mann og ég opna augu mín og fer að sjá hlutina eina og þeir virkilega eru en ekki eins og ég vil sjá þá... já já ok þannig að ég kýs að sjá hlutina með svartsýni stundum frekar en bjartsýni, oh það hlaut að vera heimurinn er virkilega æðislegur og allt það fólk sem í honum er :)

 

 




Þér finnst eflaust að peningar gefi þér vald yfir lífi þínu, þeir losi þig undan ábyrgð og gefi þér aukið frelsi. En um leið getur þú verið mjög rausnarleg/ur og gefið af sjóði þínum til að tryggja þér ást, athygli og tryggð þeirra sem næst þér standa. En þessum gjöfum fylgir kvöð og þú þarft að þroska með sér sannari gjafmildi árið 2007 uns verknaðurinn verður eðlilegur og trjáir sanna, skilyrðislausa ást. Þegar þú verður fær um að huga betur að því að gefa af alhug þá finnur þú að kærleikurinn er allt sem er og að allt efni er gert af kærleik sem myndar eina heild og talar til allra ef þeir aðeins legðu við hlustir.

AHA peningar eiga það til að gera einmitt það,og ég á sem sagt að fara nota þá til þess að kaupa mér vini, ást og athygli einmitt...

 

 



 

 



Seinni hluta ársins leitast þú við að vera tengd/ur náttúrunni og elskar hana bæði sem afmarkaða reynslu og hugtak. Það er forvitnilegt að sjá að þú reynir að læra nafnið á hverri plöntu og dýri sem þú sérð. Þú nýtur þess einfaldlega að komast í líkamlega snertingu við náttúruna. Skynjun þín er djúp á hringrásinni.
Ok seint næsta sumar fer ég norður og lærir nöfnin á hverri plöntu sem ég sé og dýrum humm eru einhver dýr sem ég veit ekki hvað heita....... látum okkur sjá, við höfum hesta,kindur,kýr,fiðurfé,kisur,hunda svo eru fíflar, sóleyjar og eitthvað blóm sem að festist við mann,  
er ég að gleyma einhverju??? eh skiptir ekki máli ég læri það í sumar.

 

 



 

 



Þegar tilfinningar þínar eru skoðaðar árið 2007 þá leggur þú þig sérstaklega fram við að láta samband sem þú ert staddur/stödd í ganga. Það er eins og eftir því sem þú þroskast þá kastar þú sumum af þeim grímum sem þú hefur notað til að fela ótta þinn í gegnum tíðina. Þú virðist byrja að sýna eðli þitt æ meir í ár.
Fokk off er ekki í sambandi..... næsta

 

 



 

 



Ef þú velur þér lífsförunaut má viðkomandi teljast mjög heppin/n því þörf þín til að næra og annast þá sem þú elskar er svakalega mikil. Þú elur af þér sterkustu öryggiskennd sem nokkur manneskja getur upplifað. Mikilvægt er að elskhugi þinn meðhöndli þig eins og viðkvæmt blóm og upplifi dýptina sem býr innra með þér.
Humm, aftur þetta með blómið... ég er bara alveg að fara gráta dýptin er svo mikil:cry:

 

 



Svo til þess að toppa þetta ár

 

 



Það er eins og þú áttir þig á þeirri staðreynd að himnaríki býr í hjarta þínu, í vitund þinni og þú getur náð til þess jafnvel á göngu þinni á þessu andartaki

 

 



Thats just great, ég sé að ég á frábært ár framundan í sveitinni með öllum dýrunum með himnaríki í hjarta :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 15:44:17 / sigrun_28

Hvað er eiginlega á seyði :)

Ég meina það sko hvað er þetta með mann..... ég ákveð að vera voðalega dugleg að blogga en svo er ég dugleg í smá tíma og svo nenni ég þessu ekki meir.... þetta er svona story of my life.. svona er þetta með ræktina og svo margt annað í mínu lífi.... EN EKKI LENGUR núna ætla ég að vera dugleg með ALLT :)

Jæja þá er komið nýtt ár og nýjir tímar taka við :D ég hætti að reykja um áramótin og er það eitthvað sem ég er búin að vilja gera lengi... ég taldi mér trú um að ég gæti þetta ekki meðan ég væri í skólanum því það er svo erfitt að hætta að reykja hérna því það er svo mikil streita og allt það :o ég hafði orð á því við hana móður mína um daginn að þetta væri voðalega skrítið að vera hættur að reykja.. svona sérstaklega útaf þeim félagsskap sem maður fær þegar maður reykir :) ég sagði við hana að maður myndi einangar sig aðeins meira þegar maður er hættur.... hvað haldið þið að hún móðir mín hafi sagt við mig:lol: Sigrún mín ég skil vel ef að þú byrjar aftur að reykja... ég meina þú getur alveg bara reykt kannski svona eina og eina og bara haldið þig við það ekki satt ? ég vil ekki að þú einangrir þig svona elskan þá er bara hætt á því að þú dettir í þunglyndi .  ÆJ þessar mæður :) þær vilja svo vel alltaf

Mamma ég elska þig :)

jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengar í bili en ég skal lofa að vera duglegri að blogga

kveðja Sigrún (reyklausa )


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 18:34:29 / sigrun_28

Kharl Anton :)




Ég á yndislegasta barn í heiminum það er alveg á hreinu..... ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki eignast hann :) ég veit að þetta segja allar mæður en MINNS ER BESTASTUR :D hann er alltaf að segja við mömmu sína hversu mikið hann elski hana og passar alltaf uppá að henni líði ekki illa......hann sparar ekki orðin þessi litli sjarmur og veit ég að sú sem að hreppir hann verðu aldeilis HEPPIN....en það verður ekki fyrr en hann er orðin svona 30 ára 8| ég segi 30 ára vegna þess að hann ætlar að vera hjá mömmu þangað til þá hehehe....

Elsku sonur minn ÉG ELSKA ÞIG MEIRA EN ORÐ FÁ LÝST...


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 16:27:06 / sigrun_28

Halloween

.....

He's still ALIVE....... þetta er frasi gærkvöldsins og núna er bara að bíða eftir mynd númer 9........ ég verð að segja fyrir minn smekk að ég get ekki beðið..... en eitt er víst hún Maja verður að láta laga þetta ljós fyrir utan hjá sér....... flöktandi ljós, halloween og Darri...... nei þakka þér8|........ og ekki má gleyma kisa hoppandi inn og út um gluggann fyrir ofan okkur já og brjálað veður........ LOVE IT :klikk:

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 18:09:54 / sigrun_28

Skrítið líf!!!!!!!!!!

Ég veit ekki alveg hvað það er með okkur mannfólkið... alltaf höldum við að við getum breytt fólki og hvernig það hugsar.... en það er bara þannig að ef við elskum einhvern mikið og eigum erfitt með að sleppa þessari manneskju þá reynir maður allt. En ef þetta fólk vill ekki sjá hvernig það er orðin þá reynum við alltaf að opna augu þeirra enda er það hlutverk okkar sem ástvinur að gera það.... en það kemur sá tími á endanum að maður verður hreinlega að sætta sig við að þau vilja ekki opna augun og breytast ekki einu sinni fyrir þá sem eiga að standa þeim næst..... fyrir mér er þetta alveg sérlega erfitt þar sem ég mun ávalt ELSKA þennan einstakling sama hvað... og mun ég örugglega aldrei loka hurðinni á hann... en það er bara ég. Veit ég bara að þegar aldurinn færist yfir hann þá mun hann sjá þetta á endanum það er ég alveg viss um en þá er oft erfitt að bæta upp fyrir þær stundir sem liðnar eru.

 

 



Tel ég að maður eigi alltaf að vökva sín sambönd hvort það sé sambönd milli maka, sambönd milli foreldra og barna eða sambönd milli vina. Maður tryggir ekki eftir á.

 

 



K.v Sigrún

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 20:43:44 / sigrun_28

I am in love but he just doesnt know it yet



Ég held bara svei mér þá að ég sé ástfangin:D myndarlegri mann hef ég bara ekki séð í LANGAN LANGAN tíma og efa ég að hann sé hreinlega til...........

Þetta er minn DREAM GUY.........

og elsku Guð leyfðu mér að dreyma hann í nótt ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 15:38:42 / sigrun_28

Tvífarar



Hérna er litla frænka mín og fyrir ofan er litla stelpan í The Cosby Show :) ég var að horfa á myndina the little girl with the match í gær og þessi yndislega stelpan lék í henni og minnti hún mig alveg rosalega mikið að litlu frænku mína :D varð bara að setja þetta hérna inn

K.v Sigrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 23:26:24 / sigrun_28

Einmanna



Hvað skal gera ? jæja núna erum við alveg að verða búin með verkefnið okkar í markaðsfræði :) og ég er að fara heim að sofa...... nema hvað ég þarf að koma heim í kalt rúm og mér finnst það ÖMURLEGT...... bara ef ég gæti galdrað fram einhvern til þess að kúra hjá mér... oh hvað lífið væri gott þá..... en í staðinn fer ég heim og leggst uppí rúm og set Titanic í tækið....... HOW SAD AM I ??????????

Kveðja Sigrún :(


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 20:50:08 / sigrun_28

Latibær tilnefndur til BAFTA-verðlauna fyrir barnaefni

Sjónvarpsþættirnir um Latabæ eru tilnefndir til bresku BAFTA-verðlaunanna, sem veitt eru sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. ,,Við erum í skýjunum og erum rétt að átta okkur á þessu. BAFTA verðlaunin eru nk. Óskarsverðlaun Evrópu og við erum gríðarlega stolt yfir því að vera í hópi þeirra sem hafa verið tilnefndir," segir Magnús Scheving, höfundur þáttanna, í tilkynningu vegna þessa.

Þættirnir um Latabæ voru tilnefndir til Emmy verðlauanna sl. vor en þættirnir hafa verið sýndir í Bretlandi í rúmt ár. ,,Það er greinilegt að íslenskir og erlendir kvikmyndagerðarmenn, sem komið hafa að gerð þáttanna, kunna sitt fag,” segir Magnús Scheving í tilefni dagsins.

Ég verð bara að segja til hamingju Maggi þetta er alveg frábært hjá þér :)



» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 19:18:54 / sigrun_28

Hann á afmæli í dag :)

Mig langaði bara að óska honum Herði (Pabba ) innilega til hamingju með daginn :) er frekar fúl að geta ekki verið heima hjá systu í kvöld til þess að fanga þessum merka degi:cry: jæja þið verðið bara að hafa mig með í anda:D

P.s. ÉG ELSKA YKKUR ÖLL


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 15:49:57 / sigrun_28

Sigga Klinga

Jæja hann á að heita Gunnar og ég á að giftast honum strax:lol: þá er bara spurning hvar þessi elska er og hvenær við eigum að gifta okkur hehe.... kannsi að þetta verði bara double wedding hjá mér og Gunna og Maju og Júlla :) þann 07.07.07 þar að segja ef þessi Gunni verður búin að láta sjá sig fyrir næsta sumar:D Annars hafði ég bara mjög gaman af þessu í gær hefði ekki vilja missa af þessu FOR THE WORLD :) það sem mér fannst fyndnast var þegar hún sagði við mig að ég hefði svona EIGINKONU LOOK og hún skyldi ekkert í því af hverju ég væri ekki gengin út hehe og svo sagði hún að ég væri með mikla svona HEELING gáfu og hún vissi eiginlega ekki hvað ég væri að gera hérna á Bifröst.................... En staðreyndin er sú að ég er á Bifröst og ég á EKKI kærasta....... en það fer kannski að breytast:) en hvenær verður að koma í ljós.... en á meðan bíð ég spennt hérna á Bifröst......... það var nú talað um í gær að ég gæti bara orðið svona þessi GÓÐI viðskiptafræðingur....... ef ég t.d. væri að vinna í banka og þyrfti að segja einhverjum að hann væri farinn á hausinn þá gæti ég svona.... brake it to him gentle hehe....... bara gaman af þessu 8)

Jæja best að halda áfram að læra......

svo er það bara nýji uppáhalds sjónvarsþátturinn minn í kvöld WEEDS :lol: bara snild... hann svona sýnir manni hvað maður getur gert til þess að afla sér viðurværis ef Bifröst klikkar:o

K.v. Sigrún



» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 22:45:22 / sigrun_28

Kauphöll

Jæja þá er bara búin að skoða framtíðarvinnustað sinn:) eftir að hafa farið í heimsókn í kauphöll þá get ég með sanni sagt að ég er alveg á réttri hillu í mínu námi8) þetta var alveg ótrúlega skemmtileg reynsla og góð tenging við atvinnulífið..... ég er alltaf að sjá meira og meira hvað það er sem ég vil vinna við þegar ég útsrkifast héðan..... og hvað það væri gaman að fara í viðskiptaferðir hingað og þangað um heiminn..... hehe núna er ég alveg komin langt fram í tímann.... og farin að láta mig dreyma alveg heilan helling:lol: en ef maður hefur ekki drauma þá hefur maður ekki neitt :) við fórum saman ég, Rósa, Zanný og Robbi og var þessi bæjarferð meira en lítið skemmtileg...... eftir að hafa verið í rúman klukkutíma í kauphöllinni þá ákváðum við að kíkja aðeins í kringluna og fá okkur að borða og eftir það fórum við á kaffihús og sátum þar dágóðastund og kjöftuðum um allt milli himins og jarðar:D ekki var svo bílferðin heim neitt verri þarna vorum við og töluðum um allt frá trú yfir í kynlíf hehehe auðvita maður getur ekki komist hjá því að ræða aðeins um það... svona þar sem maður er alveg sveltur hérna uppá Bifröst :lol: Svo þegar heim var komið þá sótti að mannI þessi þvílíka þreyta og er ég búin að sjá að borgin hreinlega tekur frá manni alla orku en maður finnur það ekki fyrr en maður er komin heim í sveitasæluna :D

k.v Sigrún sveitastelpa:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 20:10:38 / sigrun_28

Kauphöll á morgun

Jæja þá er það bara kauphöll á morgun:) ég verð að segja að ég er orðin frekar spennt að kíkja á þetta...... það er aldrei að vita nema maður verði svo bara svona STOKEBROKER í framtíðinni heheh KAUPA SELJA KAUPA SELJA :lol: það er svo eins gott að þá séu sætir gaurar að vinna þarna...... annars fer ég EKKI ;)

Svo vil ég óska henni Höllu minni innilega til hamingju með daginn :) og henni Betu minni innilega til hamingju með strákinn :)



» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012